3.1.2007 | 22:12
Nýtt nýár!
Þá er nýtt ár hafið þó erfitt sé að greina mun dags og nætur og liggur vandinn aðallega hjá mér. Ég náði að fyllast gleði og kvefi. En sjálfstæðir listamenn búa ekki við neina samhjálp þegar kemur að veikindum. Reyndar mun Sjóvá greiða mér 40.000kr á mánuði í hálft ár ef ég er búinn að vera veikur í meira en þrjá mánuði. En mitt í þessu hugga ég mig alltaf við það sem efnaður frændi minn sagði alltaf: Mundu bara Davíð minn að það bað þig enginn um að gerast söngvari.
En til allrar hamingju náði ég mestri hálsbólgunni úr mér fyrir nýársdag. En hálsbólga er bólga eins og orðið gefur til kynna og bólgur má lækna með Ibufeni í stórum skömmtum eða sterum í smáum skömmtum. Ef eitt virkar ekki reynir maður stundum hitt. Þá syngur maður vel í eina kvöldstund en daginn eftir er maður eins og lamin spýta. Ætli þetta heiti ekki að vera listamaður
En áramótin komu og ekkert brá útaf í stóru veislunum. Perlan er alltaf erfið en við Stefán vorum eins og sitthvor póllinn á kompási og hlupum í hringi. Á Sögu hrökk restin af hálsbólgunni upp úr mér í miðju lagi en það er með það eins og hvert annað hundsbit, bara kyngja því. Þetta er mjög gaman en stundum langar mig bara að keyra leigubíl.
Athugasemdir
Þinn efnaði frændi var dásamlega hreinskilinn. Séra Guðmundur Karl Brynjarsson söng eitt sinn hástöfum, þegar hann var ungur og vann á vellinum. Ungri þeldökkri samstarfskonu hans varð að orði; You are a nice person Gumí, but you can´t sing.
Kærar áramótar kveðjur af vestan. Þröstur Jóh
Þröstur Jóhannesson (IP-tala skráð) 4.1.2007 kl. 01:03
kvitt fyrir innlit
Ólafur fannberg, 4.1.2007 kl. 08:11
Gleðilegt ár, vona að þú hafir fellt fá tár - frekar fengið þér smá tár þetta ár enda ertu alveg endalaust klár með ljóst hár og alveg obboslega frár - vona að eftir þessa "vísu" verðir þú ekkert sár en verðir alltaf Blár
Gaman að sjá þig hér...long tæm nó hir!!! Mættir nú alveg láta hirra í þér sko...
Margrét Elín Arnarsdóttir, 4.1.2007 kl. 23:19
hey verð bara að segja að þið stóðuð ykkur rosa vel á sögu...nóg til þess að ég grét af hlátri....og ekki varð ég vör við umtalað hálsbólgu. Gleðilegt ár!
Guðný M, 5.1.2007 kl. 16:16
Sæll Davíð, rambaði á þessa síðu af tilviljun. Mun fylgjast með þér héðan í frá. Ég er á landinu ef þú hefur tíma fyrir einn kaffibolla. Guja
Guðríður Ármannsdóttir (IP-tala skráð) 9.1.2007 kl. 15:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.