Rækjur og Rakettur

Margt í gangi þessa dagana. Það verður erfið útför í dag og svo munum við Stefán syngja við skautasvellið á Ingólfstorgi.

Ég horfði á flugeldasalana í Kastljósi í gær. Örn Árnason sjálfstæður flugeldafíkill og Jón hjá Landsbjörg. Það er mjög göfugt að styrkja gott málefni og kaupa af björgunarsveitunum en vandinn er sá að ég kaupi bara aldrei flugelda. Er ekki ótrúlegt að land sem stærir sig af því að vera herlaust skuli verða að treysta á sjálfboðaliðasveitir þegar náttúruhamfarir ganga yfir og stórslys verða. Þessar björgunarsveitir eru svo að skrapa upp í kostnað með sölu á ljósaperum, rækjum og rakettum. Svo rekum við líka háskóla sem fjármagnar sig með skafmiðum, happadrætti og peningakössum. Neeeeii. Svona gerir maður ekki. Góða helgi!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný M

Heill og sæll!

Væri ekki bara fínt ef þú skelltir þessu hugarangri bara upp í kæruleysi og keyptir þér eins og einn fínan kassa af flugeldum og losaðir um sprengiútrás ársins! Og ekki gleyma því að við erum duglegast þjóð í heimi og förum óhefðbundnar leiðir í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur :-)

Áramótakveðjur Guðný M 

Guðný M, 29.12.2006 kl. 10:12

2 Smámynd: Ólafur fannberg

kvittó

Ólafur fannberg, 29.12.2006 kl. 13:14

3 identicon

Spurning að sprengja upp alvöru kínverja.  Bæði er nóg af þeim og svo kosta þeir trúlega minna og þá hafa björgunarsveitirnar ekki eins mikið að gera. 
ÁP 

ÁP (IP-tala skráð) 30.12.2006 kl. 01:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband