27.12.2006 | 15:03
Þessi agalega Evrópa
Það er hreint með ólíkindum hversu öll umræða á Íslandi er ófagleg. Þegar ræða þarf brýn pólitísk málefni er umræðan strax farin að snúast um persónur og hver heldur með hverjum. Ég var einu sinni að þýða bækling úr þýsku yfir á íslensku. Mig vantaði orð yfir ósköp ómerkilegar skrúfur. Ég hringdi í amk fjóra Þjóðverja á Íslandi og allir gáfu sama svarið: ég er ekki sérfræðingur á þessu sviði og treysti mér ekki til að svara þessu. Ég urraði á móti MIG VANTAR BARA EITTHVAÐ, NOKKURN VEGINN.
Þá fóru að rifjast upp fyrir mér sambærilegir hlutir. Ég var einu sinni að sýna Austurríkismönnum Suðurlandið, Seljalandsfoss og Gljúfrabúa. Mig vantaði orðið yfir gjá eins og Gljúfrabúa. Enginn treysti sér til að gefa skýrt svar því þeir voru ekki jarðfræðingar. Þetta er óþolandi pirrandi. Eftir nokkur ár í Evrópu fór ég að skilja þetta. Menn eru ekkert að gaspra um hluti sem þeir hafa ekkert vit á.
Á Íslandi eru menn mjög snöggir upp og mynda sér skoðanir á alþjóðlegum málefnum út frá eigin hyggjuviti. Þetta er að drepa alla helbrigða umræðu. Evrópusambandið er skammaryrði; táknar bákn, kúgun og reglugerðafargan. En ég bjó þarna í miðju sambandinu og hef sjaldan haft það betra. Menn hrópa upp yfir sig og segja að það sé fáránlegt að börn megi ekki vinna, og að verktakar þurfi að bera ábyrgð á þeim húsum sem þeir byggja, að flutningabílstjórar verði að hvíla sig reglulega o.s.fr. Vissulega eiga sumar reglur við aðrar aðstæður en almennt séð hefur ESB samningurinn komið reglu á kaótíkina hér.
Njörður P. Njarðvík benti mér á athyglisverðan punkt um daginn. Hann sagði að Evrópusambandið væri eina stjórnvaldið sem stæði vörð um mannréttindi á þessari plánetu.
Það er mjög erfitt að taka þátt í umræðu sem hefst á upphrópunum eins og "fávitarnir í Bandaríkjunum" og "báknið í Evrópu". Ég hvet alla til að lesa VERÖLD SEM VAR eftir Stefan Zweig. Þessi bók er skrifuð af ótrúlegu fordómaleysi af manni sem flúði nasismann og þá Evrópu sem hann elskaði. Engar upphrópanir, engir sleggjudómar, aðeins úthugsaðar vangaveltur um mannlegt eðli og orsök og afleiðingu í pólitísku samhengi.
Um evruna tjái ég mig ekki, ég hef enga þekkingu til þess þó að mér finnist hún spennandi
Athugasemdir
Já, við íslendingar erum skrítnir. ég tek undir þetta með þér, ég er meiri "evrópumaður" í mér en "bandaríkjamaður" þrátt fyrir allt.
Bragi Einarsson, 27.12.2006 kl. 15:38
Eins og talað úr mínum munni. Hér er umræðan, t.d. um alþjóðeg stjórnmál mjög yfirborðskennd og lituð eftir vanmáttugri heimssýn hvers og eins. Við vitum lítið annað en það sem stóru fréttastofurnar færa okkur upp á skjáina. Er það nægilegt til að mynda sér heilbrigðar réttsýnar skoðanir?
Held barasta að ég tjái mig ekkert um að því mig vantar meiri þekkingu!
Sveinn Ingi Lýðsson, 27.12.2006 kl. 21:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.