20.12.2006 | 19:38
Skata og söngur
Þá er skötutíðin hafin. Ég fór í tvær veislur í gær, söng í einni og át í hinni. Skatan er almennt orðin mildari og ég kenndi því um að sjóflutningar frá vestfjörðum eru nú aflagðir. Ælti þetta fari ekki sem ferskt hráefni að vestan en komi hingað suður sem úldmeti. Landleiðin er ekkert mikið greiðfærari en sjóleiðin.
Í skötutíð er mikið sungið. Ég læt hér fylgja með gamla mynd af mér og norskum tenórsöngvara sem var mjög vinsæll í Tromsö og Hollandi snemma á sjöunda áratugnum.
Athugasemdir
hef aldrei etið skötu játa það hér með hér og nú....Gleðilega jólahátið
Ólafur fannberg, 21.12.2006 kl. 08:09
skatan er alltaf jafn yndæl, en hvor ykkar er aftur þessi norski?
Gleðileg jól, Davíð og hafðu það gott um jólin.
Bragi Einarsson, 21.12.2006 kl. 16:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.