14.12.2006 | 17:50
Þjófar, krakk og Hemmi Gunn
Aja, smá hlé á skrifum enda allt vitlaust að gera. Byrjaður að grafa grunn í Reykjanesbæ og búinn að redda vinnuskúr. Í vor verður öllum boðið í innflutningspartí og í sumar grillpartí. Svo er búið að vera vitlaust að gera í söngnum. Skemmtilegt var að syngja í afmæli Hemma Gunn á Brodway. Það var góðmennt og þeir sem töluðu og sungu höfðu allir persónuleg kynni af Hemma. Ekkert fegrað, enginn fagurgali, bara talað frá hjartanu og hreint út. Við Stebbi sungum Blue Christmas og færðum dauðan Elvis að sjálfsögðu upp á Hemma. Gekk mjög vel.
Í fyrradag söng ég með Ester systur á Heilsuhælinu í Hveragerði. Sem aukalag ákvað ég að taka Agnus Dei. Í miðju lagi áttaði ég mig á því að þetta var heiltóni of hátt, en sú útgáfa sem ég syng vanalega fer þó á mín efstu mörk. Það stóð líka heima, á efstu nótunni lokaði ég öðru auganu, studdi með hnjánum og lifrinni og allt kom fyrir ekki. Það sem kom var eins og skelfingarbaul úr kálfi sem Guttormur í Húsdýragarðinum var að misnota um leið og hann steig á norskan skógarkött. Það kom samt eitt bravo frá gamalli konu.
Góð er sagan líka af Anton Steingruber söngkennara. Anton þessi er eins og austurrískur pylsugerðarmaður, þybbinn, brosmildur, talar hátt og öskrar í farsíma eins og í gamla loftskeytastöð. Hann hefur alltaf búið hjá vinafólki hér í Reykjavík og þetta ágæta fólk er búið að láta hann hafa lykil. Um daginn kom hann til Íslands og húsráðendur voru ekki heima. Anton Steingruber ruddist inn eins og honum einum er lagið og setti þjófavarnarkerfið af stað. Um leið hringdi síminn og hann vissi að þetta væri öryggisþjónustan svo hann svaraði og öskraði í símann í gegnum hávaðann af kerfinu: "Ich bin Anton Steingruber und darf hier sein. ANTON STEINGRUBER, tut mir leid." Svo lagði hann á. Þessi svör dugðu öryggisþjónustunni lítið svo þeir hringdu í gsm númer húsráðenda. Þar var svarað og öryggisvörðurinn greindi skelkaður frá aðstæðum og sagði: Kerfið hjá ykkur fór í gang og við hringdum eins og lög gera ráð fyrir. Franklín Steiner svaraði og bullaði bara. Á hann nokkuð að vera þarna?
Athugasemdir
Bravo Sehr gut! gute Geschichte, aber schlechtes Lied (dálítð ryðguð í þýskunni)
Gott hjá þessari gömlu að klappa samt í lokin. Ætli hún hafi nokkuð verið heyrnadauf?
Helga Linnet, 15.12.2006 kl. 01:05
Davíð, þig hefur vantað pungklemmu, félagi
Bragi Einarsson, 15.12.2006 kl. 16:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.