Úðlendingar

Við Stefán urðum að keyra til Hornafjarðar þar sem nokkuð tvísýnt var með flugið. Stefán keyrði til baka og var að sjálfsögðu stoppaður af löggunni eins og alltaf þegar hann gleymir ökuskírteininu. Löggan var hinsvegar kurteis og minnti hann á að fyrir 3 klst hefðu allar sektir hækkað um 30%.

Við Stefán höfum kynnst nýju vandamáli sem snertir árshátíðir fyrirtækja. Þetta er smá kúlturmál. Við höfum lent í að syngja í fordrykk hjá fyrirtækjum sem eru með marga pólverja i vinnu. Þar stendur mörlandinn með bolluna í skrautglasi með röri og regnhlíf og segir ekki orð. Pólverjarnir mæta hinsvegar með sinn eigin vodka og drekka hann í lítratali á fastandi maga. Í einni veislunni lágu nokkrir í fósturstellingu á gólfinu sjúgandi á sér þumalputtann. Þetta er dagsatt. Ég sem hélt að maður hefði séð þetta allt saman í söngskólanum. Ónei.

 En heimurinn er oðrinn alþjóðlegur. Söngvarar elska vona húmor. Japani stjórnar Wagner:

baden-baden


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Japaninn sem um ræðir heitir Kent Nagano en hann er ameríkani og talar ekki orði í japönsku. Ég hef sungið með honum 2svar og það minnti mig á að frægð og kunnátta fara ekki alltaf saman. Kent tilheyrir fyrri hópnum þó svo að þjóðverjar grínist með það annað veifið og segi: "Wer Kennt Nagano?"

BTK

Bjarni (IP-tala skráð) 5.12.2006 kl. 10:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband